|
|
11.08.2006 13:32:07 / asle
er flutt á asle.bloggar.is ..... sjáumst þar.
»
01.07.2006 09:28:00 / asle
Nú skal bloggað ... gera eitt svona gott langt blogg þá þarf ég
ekki að blogga leeeennnnnngi muhhhhh.
Hátiðin hefst eftir nákvæmlega 9 daga .... http://www.draumasmidjan.is/deaf2006/is/
ég er búin að sitja sveit í 2 ár að skipuleggja þessa hátið ásamt
vinkonu minni Möggu Pé. Við erum sko búnar að læra helling á
þessu, ég hafði aldrei skipulagt neitt svona áður og ef ég hefði
vitað í upphafi hvað ég væri að fara úti þá hefði ég að öllum
líkindum hætt við med det samme. Það eru alls kyns smáatriði
sem maður pældi ekkert í, allar umsóknirnar sem við skrifuðum
til að sækja um styrk til hinna og þessarra, hótel,
flug, rútur, dagskrá, tæknimenn, sviðsdót, leikhúsmiðar,
heimasiða.... just name it wow.... wow.....og öll þessi e-mail
sem ég hef skrifað út á minni bjöguðu ensku....... og svo er
þetta að skella á eftir 9 daga. Ég er þess handviss um að þetta
verður GLÆSILEG hátið, og hvet alla sem fara norður til að sjá sem
flestar sýningar, þetta eru sko pro leikhús og ekkert slor.
Annars var ég fjallkona í ár.... ásamt Tinnu Hrafnsdóttur, voða
stolt af því, samt voru ansi margir sem héltu að ég væri túlkur....
gawd, það fer pínu í taugarnar á mér, má táknmál ekki sjást án þess
að það sé samansemmerki milli táknmáls og túlks. Þessi heiður var
ólýsanlegur, að ganga á Austurvelli með skautið á hausnum var bara
ótrúleg upplífun, ég hélt á tímabili að ég yrði ekki eldri af
stressi, svo gekk þetta bara svona glimrandi vel. Meira að segja
veðurguðirnir sýndu tilllitsemi og hættu að rigna og hvessa svona
rétt á meðan, og sólin fór að skína á okkur, eftir allt þá fór að
sjállfsögðu að rigna aftur. Ég mun aldrei gleyma þessum degi, og
það sem var erfitt að þegja yfir þessu heheeheh....... mig langaði
bara að öskra yfir allt og tilkynna öllum hver fjallkonan í ár yrði
löngulöngulöngu fyrir 17. júní. En mér tókst að þegja, jebb ekki
auðvelt samt Það var skemmtilegast að fara á Grímuna þann 16.
júní og frétta að allir væru að skíma í kringum sig í leit að
líklegri fjallkonu, daginn fyrir þjóðhátið hehe, mjög spés því ég
vissi að engum dytti í hug að við Tinna værum Fjallkonurnar
sjálfar.
Litla ljósið hann nýfæddi frændi minn verður skírður 16.júlí og
þau veittu mér þann æðislega heiður að fá að vera skírnarvottur,
reyndar hef ég hugsað til bloggsins mins fyrir ári síðan þegar
allir voru að forvitnast hvað Matthías ætti að heita að þá skrifaði
ég hneykslisblogg yfir nöfnum sem voru akkúratt þá sammþykkt af
mannanafnanefnd, Ljósálfur og Spartakus ... hehe... Gunnar bróðir
og Lena kalla hann alltaf litla ljósið ... og alltaf verður mér
hugsað til nafnsins Ljósálfur... guð forði því .....*hóst*
Ljósálfur *hóst* Ég sem sagt verð á hlaupum milli leikhúss og
skírnarveislu þann 16. Ég þykist viss um að þau velji gott nafn
fyrir hann litla frænda minn, hann er svooo sætur ógurlega
pínulitill og brosir samt úti eyru þessi elska. awww.... bráðn.
Ég fer svo til Krítar 17.júlí í 2 vikur í frí með Möggu Pé, við
ætlum að hlaða batteríin úff það verður nice... ég var sko ekkert á
leiðinni til útlanda í fyrradag, þó Magga mín væri búin að suða í
mér í fleirri fleirri mánuði að koma með sér eftir hátiðina í
eitthvað frí, mér finnst það bara ekki alveg svona sjálfsagt að
hlaupa bara frá manni og börnum á sólarströnd án þeirra, svo sagði
minn maður við mig ... nú af hverju skellir þú þér ekki með henni
... ég varð bara uhh ehh..... ertu að meina þetta ? og
unglingurinn æstur líka ... já mamma ég skal sko passa fyrir
þig ehhhhh ... uhhh og já úr því varð að ég fer. Magga
segist á því að ég eigi að giftast þessum manni, ég er alveg
innilega sammála og spái hvort ég panti ekki prest og kirkju þann
07.07.07 ... spurningin er bara hvort sá heitelskaði mæti?
Án efa á ég besta mann í heimi og flottasta frændann og er eitt
bros yfir allri minni hamingju.
over and out .... svitn... vinna vinna.... hátið eftir 9
daga
»
09.06.2006 22:26:47 / asle
Ég verð að segja ykkur að ég er með bestu hárgreiðslukonu í
heimi !!... ég fór í klippingu og litun í dag hjá Hönnu Láru og hún
kann sko að þvo hár, þegar átti að þvo úr litinn úr hárinu þá
settist ég svona eins og alltaf áður í stól og hallaði hausnum
aftur í vaskinn..... en jédúddamía hvað þetta var sniðugur stóll
!!.... hann breytist í nuddbekk ... ég lá og var með fáránlega gott
nudd upp og niður bakið á meðan Hanna þvoði og nuddaði á mér
hausinn .... þvílikur lúxus... svo er Hanna svo mjúkhent að það er
æði.
Gawd hvað þetta var gott...
ég fer til hennar í neglur á sunnudaginn, verst að það er ekkert
nudd í boði þá en ég er allavega að breytast úr þreyttri
útslítinni húsmóður í pæju aftur ... yess... yess.
»
01.06.2006 14:28:22 / asle
Þekkir þú fínar dömur og
alvöru konur
í sundur?
Fínar dömur
:
Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja
kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í
sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti
pirrandi.
Fínar dömur
:
Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur
og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og
drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg
sama.
Fínar dömur
:
Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki
í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort
eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar
hann.
Fínar dömur
:
Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli
í pokann með þeim.
Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í
eldhússkápnum.
Fínar dömur
:
Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður
en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni.
Slepptu þessu bara
.
Fínar dömur
:
Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig
gúmmíhanska. Þannig færðu betra
grip.
.
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að
opna krukkuna!
Fínar dömur
:
Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í
sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs
rauðvín?
samkvæmt þessu er ég stundum alvöru og stundum fín

»
18.05.2006 12:18:11 / asle
Litill heilbirgður 13 marka og 51 cm frændi mættur í heiminn
sá verður sko uppáhalds frændi minn !! Hann likist foreldrum sínum
ekki neitt annars á ég eftir að skoða hann betur er bara búin að
sjá myndir. Kiki vonandi til þeirra í kvöld eða á morgun vil gefa
þeim smá næði.
Annars fórum við ég og Matthías í gær að leika í kexauglýsingu
fyrir Frón sá stutti verður stjarna eins og mamman, nú fær hann að
heilla alla íslendinga upp úr skónum með sínu ótrúlega sæta
brosi.
Viðburðarikur dagur í gær og í kvöld ætlar Silvía Nótt að sigra
heiminn til hamingju Ísland !!! auðvitað hef ég óbilandi trú á
okkar framlagi eins og alltaf og mun sitja límd við skjáinn þar til
yfir lýkur með dætrum mínum.
»
16.05.2006 09:10:08 / asle
Ég er í þessum skrifuðu orðum alveg að springa úr spenningi,
bróðir minn og mákona eru komin niður á fæðingardeild loksins
eitthvað að gerast núna, en þetta verður vonandi auðveld og góð
fæðing ég er svoooo spennt að verða frænka... ég er sjálf búin
að hrúga niður hálfu fótboltaliði og loksins núna fæ ég að upplifa
að verða frænka....
Yndislegt alveg .... ég hef aldrei verið svona uppnumin af
annarra fæðingum, jú mér fannst mikið varið í fæðingu vinkvenna
minna ... EN ... þessi er öðruvisi ... þetta er fyrsta
systkinabarnið ... ohhh æði æði .... mig langar sko að knúsa barnið
alveg sem allra fyrst og ætla sko að dekra við það !!.... Elska það
nú þegar þetta kríli !!
Awww hlakka svo til að frétta hvort kynið það var og bara að
það sé heilbirgt það er fyrir öllu...
Já ein hér í smá dramakasti excuse me !! en það er ekkert í
heiminum merkilegra akkúratt núna 
»
08.05.2006 15:11:55 / asle
Ég á bara ekkert auðvelt með að setjast niður og skrifa blogg á
daginn fyrir syninum sem vill hanga utan á mér allann liðlangann
daginn hann er orðinn svo mikið mömmubarn að ég er farin að
örvænta, ég reyni allt sem ég get til að fá hann til að dunda sér
sjálfur en neiiii það kemur bara upp fýlusvipur ef ég legst ekki í
gólfið með honum og segi Möööö ...... vofffi ........ kubbur.....
gefa mömmu ..... lalalalal... o mæ gad hvað þetta er mikið
mál....
Hin börnin voru ekki svona.... og ég man að ég öfundaði hinar
mömmurnar sem áttu svona mömmustráka að eiga svona
knúsikalla.....
jee ræt ... ég öfunda þær ekkert lengur svo mikið er vist .....
ég er aftur á móti guðslífandifegin að eiga unglingsdóttur sem
nennir að fara út í labbitúra með hann í kerrunni af og til ... það
bjargar geðheilsunni minni og gefur mér smá stund einni með sjálfri
mér. Besta dóttir í heimi !!....
Reyndar er þetta voðalega notalegt að eiga svona knúsikall ....
finna svona mikla ást til sín .... ég viðurkenni það alveg að þetta
er yndislegt ..... en eins og þið vitið þá getur maður fengið nóg
af góðu.... Ef maður væri étandi páskaegg upp á hvern einasta
dag þá verður það ullabjakk á endanum. Ég er samt ekkert að
likja syninum við páskaegg 
»
16.04.2006 10:20:41 / asle
Nice frídagar .... ég geri bókstaflega ekki neitt nema dúlla mér
...... kvöldin eru best ... þá fer maður út og fær sér sigó og
horfir á stjörnurnar, þær sjást mjög vel þar sem ég bý, litið um
götuljós og frekar dimmt hér á kvöldin.
Fermingin heppnaðist mjög vel, Drengurinn ánægður með allt og
alla held hann hafi stækkað um nokkra sentimetra við
athöfnina.
Mig langar að breyta til hérna heima... færa til húsgögn og
endurraða í skápanna ... mig vantar bara nennið.......... megið
senda mér smá í huganum.
»
27.03.2006 10:17:59 / asle
Langt siðan ég hef sett inn nýja færslu, var með sjöttu
sýninguna í gær sem gekk auðvitað voðalega vel áhorfendur fóru
út heillaðir og tárvotir 
Litli kúturinn minn er lasinn með nokkrar kommur, hangi bara
heima og hjúkra honum eins og er vonandi verður honum batnað fyrir
næstu helgi því að stóri strákurinn fermist næsta sunnudag og
þá eru 2 börn af 5 fermd .... verður gaman að sjá Darra
fermast í nýju sparifötunum hann er svo ofsalega stór og fallegur
þessi elska, ég er voða stolt af honum.
Farin að hjúkra litla sjúklinginum.
»
08.03.2006 08:18:52 / asle
Ég var frekar eirðarlaus í gærkveldi vissi ekkert hvað ég ætti
af mér að gera, búin að vera á æfingum öll kvöld í svo margar vikur
að ég var hætt að eiga líf, og núna kann ég ekki lengur að eiga líf
heldur hringsnýst um sjálfa mig hér heima hjá mér og horfi á
ókláruðu húsverkin....
Þvottahrúgan í sóffanum mínum var ekkert spennandi verkefni svo
ég kveikti á skjánum og skoðaði biómyndaúrvalið, en það hefur gerst
undanfarið að ég hef ekki getað slappað af og horft á mynd án þess
að vera að horfa á leikarann vinna vinnuna sína gagnrýnum augum....
stórfurðulegt en satt, þegar maður er á kafi í hlutverkalestri,
æfingum og alls kyns pælingum hvernig best sé að koma verkinu frá
sér með því að virka sannfærandi þá gerist sko ýmislegt í
heilabúinu....
Ég semsagt leigði mér gamla mynd um fjöldamorðin í Green River
og sú mynd fjallaði líka um fjöldamorðingjann Ted Bundy, kræst en
ógeðslegir menn, og auðvitað horfði ég aðallega á það hvernig
leikararnir komu þeim til skila frá sér... í staðinn fyrir að bara
horfa og gleypa í mig myndina þá fór ég að pæla hvernig þeir hefðu
unnið sinn karakter, hvað þeir hefðu lesið sér til um morðingjana
til að vera sem trúverðugastir osfrv osfrv.....
Ég er ekki sátt við þetta, mig langar að geta bara horft á mynd
og slökkt á heilanum á meðan en það virðist allt fara á fleygiferð
ef augun rekast á sjónvarp, og maður verður nánast þreyttur við að
horfa á eina biómynd...
Ég verð að viðurkenna að ég sakna æfingatímabilsins, það var svo
ótrúlega gefandi að vera á fullu alveg stanslaust þó maður væri að
sligast úr þreyttu og alles þá var minns bara happý....
Þvottahrúgan á sóffanum mínum öskrar ...... ryksugan vælir af
einmanleik og hillurnar eru horfnar á kaf í ryk .... ætli sé ekki
best að fara að þrifa ... döhhh vill ekki einhver góðhjartaður
þarna úti bjóða mér hlutverk í nýju verki .... heheheeh....
»
07.03.2006 14:53:22 / asle
Vá maður er bara snortinn eftir að lesa svona ofsalega góða dóma
í öllum blöðum um leiksýninguna í dag...... 
»
05.03.2006 00:34:14 / asle
Frumsýningin tókst með eindæmum vel !!.... nú er bara að biða
eftir leikhúsgagnrýninni ouch.. verður vonandi góð gagnrýni
bara. Farin í rúmið með bros á vör.
»
28.02.2006 15:02:42 / asle
"Viðtalið" verður frumsýnt á Laugardaginn 4. mars í
Hafnarfjarðarleikhúsinu ..... verður sýnt aftur 5. mars og svo 2x í
viku eins lengi og miðar seljast allar sýningar eru kl 20:00 ... og
er klukkutíma langt leikrit ..... getið nálgast miða hér ...
www.midi.is eða bara keypt miða í
Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Vonast til að sem flestir komi 
»
25.02.2006 10:38:01 / asle
Það er oft erfitt að þýða yfir á táknmál eitthvað á íslensku
þannig að það þýði nákvæmlega það sama.... fann þetta þegar ég
skoðaði netið í morgun alveg brillíant og greinilegt að það á ekki
bara við um táknmálið heldur öll tungumál heimsins Passið að
pissa ekki í ykkur af hlátri.
1. The raisin at the end of the hot-dog = Rúsínan
í pylsuendanum.
2. I measure one-pulled with it = Ég mæli eindregið með því.
3. Now there won't do any mitten-takes = Nú duga engin
vettlingatök.
4. I come completely from mountains = Ég kem alveg af fjöllum.
5. Thank you for the warm words into my garden = Þakka þér fyrir
hlý orð í minn garð.
6. Everything goes on the back-legs = Það gengur allt á
afturfótunum.
7. He's comepletely out driving = Hann er alveg úti að aka.
8. It lies in the eyes upstairs = Það liggur í augum uppi.
9. She gave me under the leg = Hún gaf mér undir fótinn.
10. He stood on the duck = Hann stóð á öndinni.
11. I teach in breast of him = Ég kenni í brjósti um hann.
12. On with the butter!!! = Áfram með smjörið!
13. In a green bang = Í grænum hvelli
14. I springteach him = Ég vorkenni honum
15. Front seat advise Sir = Forsætisráðherra
16. Stomp steel into them = Stappa stálinu í þá
17. Hot spring river this book = Hver á þessa bók?
18. Nobody becomes an unbeaten bishop = Enginn verður óbarinn
biskup
19. I took him to the bakery = Ég tók hann í bakaríð
20. I will find you on a beach = Ég mun finna þig í fjöru
21.To put someone before a cats nose = Að koma einhverjum fyrir
kattarnef
22. I only pay with an angry sheep = Ég borga bara með reiðufé
23. I'll show him where David bought the ale = Ég skal sýna honum
hvar Davíð keypti ölið.
24. I will not sell it more expensive than I bought it = Sel það
ekki dýrara en ég keypti það
25. He doesn't walk whole to the forrest = hann gengur ekki heill
til skógar.
»
14.02.2006 07:14:43 / asle
Döff leikhús... er það raunhæft að reyna að koma á fót leikhúsi
fyrir heyrnarlausra í svona litlu samfélagi, .... þegar aðeins 300
heyrnarlausir búa á Íslandi ?
Þessa spurningu fékk ég um daginn og vá.... ó já .... hvað með
það þó það séu fáir heyrnarlausir á Íslandi, eiga þeir ekki sama
rétt og aðrir að njóta leiklistar ? Ég bara þoli ekki þegar fólk
heldur að heyrnarlausir þurfi ekki geti ekki og vilji ekki það sama
og aðrir, Við erum raunverulegt fólk með raunverulegar þarfir.
Allar þarfirnar, langannirnar, hugsannirnar né draumarnir hurfu
ekkert þegar heyrnin fór sjáðu til,.... Fyrir utan það að
sjálfsögðu þá geta líka þeir sem heyrt horft á leiksýningar í döff
leikhúsi, oftar en ekki er markhópurinn akkúratt það fólk, Fólk sem
heyrir.. já þú last rétt menn þurfa ekki að kunna stakt orð í
táknmáli til að geta horft á leiksýningu í döff leikhúsi.
Ég ólst upp við það að eiga mér draum, og að allt í umhverfinu
hvatti mig til að bæla minn draum niður, allir voru á þeirri skoðun
að ég ætti nú að leggja eitthvað annað fyrir mig en leiklistina, og
mikið reyndi ég að fá áhuga á öðru og loka þetta rugl niður í
skúffu og reyna að snúa mér að einvherju öðru........... Málið var
bara ekki svona einfalt, ég gat ekki losað mig við þessa löngun
mína til að vinna í leikhúsi, allt annað var bara næstbest,
ótrúlegt hvað viðhorf annarra getur haft mikil áhrif á mann
sjálfann, af því það þekkti enginn döff leikhús þá datt engum í hug
að þetta væri möguleiki, af því það var ekkert á íslandi til staðar
til að minn draumur gæti mögulega ræst þá voru allir, já en..... þú
getur þetta ekki. En hræðilegt viðhorf og hvernig datt fólki í hug
að segja við aðra, þú getur ekki það er beinilis mannskemmandi. Ég
eyddi of mörgum árum í að reyna að sannfæra sjálfa mig um það sem
allir aðrir voru að segja væri rétt.
En hvað ??? Mér bauðst tækifæri og auvitað greip ég það báðum
höndum (og fótum) og righeld ennþá í þvílika hamingjan..... þetta
er dásamlegt, prófið bara sjálf að láta drauma ykkar rætast, gerið
það sem ykkur langar mest til, þannig er tilfinningin.
Þetta er víst raunhæft.
en þessa rommsu kom ég auðvitað ekki með þegar spurningunni var
varpað fram, heldur sagði ég bara....
já.
»
Síður: 1 2 3
|
|